Arna Valsdóttir: Staðreynd - Local Fact


Á sýningunni má sjá myndbandsverk sem Arna hefur sett upp á síðustu sjö árum ásamt nýju verki sem er sérstaklega gert fyrir þessa sýningu auk verksins La frá árinu 1988 sem markar ef til vill upphafið á rýmistengdum verkum Örnu. Arna lýsir sjálf best þeirri tilfinningu þegar sem hún skapar verkin: "Ég hlusta mig inn í rýmið og reyni að fanga "reynd staðarins" eða "raun staðarins" í nútíð, fortíð og framtíð"

Arna Valsdóttir nam myndlist við MHÍ og Jan van Eyck Academie í Hollandi þaðan sem hún lauk námi 1989. Í Hollandi var Arna þegar farin að gera tilraunir með nýja miðla tengdum gjörningum, tónlist, ljósmyndun og myndvörpun auk hefðbundnari myndlistar. Á þessum tíma fór hún einnig að flétta eigin söngrödd inn í verk sín. Þessar aðferðir hafa verið gegnumgangandi í sköpunarferli Örnu allt til dagsins í dag og hún hefur unnið margvísleg verk þar sem hún nýtir eigin rödd í fjölbreytt rýmisverk og gjörninga, bæði sem vídeóverk og innsetningar.

Í tilefni sýningarinnar kemur út vönduð sýningarskrá hönnuð af Sigríði Snjólaugu Vernharðsdóttur með texta á íslensku og ensku eftir Dr. Hlyn Helgason. Þar segir meðal annars um verkið Staðreyndir 1-4: "Hlutverk raddarinnar í Staðreyndum 1?4 er sérstakt og áberandi. Það er persónulegt og tengist Örnu sjálfri. Það er hennar rödd sem ómar í sýningarrýminu. Ómurinn er hennar leið til að skrá rýmið og tileinka sér það. Eins og fugl sem helgar sér svæði með kvaki sínu gerir Arna rýmið að sínu með því að raula í því. Í sýningarsalnum ómar lag sem listakonan velur út frá tengingum við liðna viðburði og upplifun sína af svæðinu."

Sýningin stendur til 12. október og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17.

Leiðsögn um sýningarnar í Listasafninu / Ketilhúsinu er alla fimmtudaga kl. 12. Aðgangur er ókeypis.