Egill Logi Jónasson

Egill Logi Jónasson
Þitt besta er ekki nóg 
27.08.2022-12.03.2023
Salur 12 

„Það er maður, það er ungur maður, það er unglingur. Í stærsta herberginu í minnsta húsinu hangir mynd af ljóni. Ljónið heldur á minna ljóni. Það ljón heldur um halann á sér og myndar endalausa hringrás ráns og dýra. Fyrir utan gluggann blæs vindurinn sérstaklega kröftuglega á veru sem leitar skjóls í hálfbyggðu bakhúsi. Tónlistin tórir, að hluta til.“   

Egill Jónasson (f. 1989), einnig þekktur sem Drengurinn fengurinn, býr og starfar á Akureyri. Hann útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri 2012 og lauk BA í myndlist í Listaháskóla Íslands 2016. Egill vinnur með ýmsa miðla eins og tónlist, málverk, klippimyndir, gjörninga og vídeóverk. Hann er einn af aðstandendum listhópsins Kaktuss.