Hilda de Paulo / Tales Frey

Hilda de Paulo / Tales Frey
Leiðnivír
05.10.2023 – 14.01.2024
Salur 01

Sýningin samanstendur af úrvali verka eftir brasilísku listamennina Hilda de Paulo (f. 1987) og Tales Frey (f. 1982), sem hafa unnið saman í meira en fimmtán ár. Listamennirnir hafa komið víða við í margvíslegum listformum og eru verk þeirra því samtal á milli fjölmargra sviða, s.s. sjónlista, sviðslista og gjörningalistar. Þau skilgreina sig sem eftirtektarvert dæmi um verkefni á jaðrinum, þar sem kannaður er krafturinn í því sem er samhliða.

Með sýningunni hafa þau áhuga á að skilgreina báðar hliðar, finna snertifletina og samrunann; árangurinn af langri samvinnu og samlífi þessara tveggja listamanna. Hilda tekur virkan þátt í gjörningum Tales, sem á móti er viðriðinn mörg af verkum Hilda. Hvað yfirfærist frá einum til annars? Hvar liggja mörkin á milli lífsins og verkanna? Á hverju er sambandið byggt? Í þessari samvinnu eru verk listamannanna sett fram sem pólitík langana, með það að markmiði að skapa aðrar útgáfur af tilverunni.

Báðir listamenn hlutu menntun sína í háskólum í Portúgal, Hilda í listasögu og Tales í leikhúsfræðum.

Sýningarstjóri: Pollyana Quintella.