Björg Eiríksdóttir

Björg Eiríksdóttir
Fjölröddun
Salir 03-04
5. október 2019 - 19. janúar 2020 

“Það heillar mig hvernig við sem líkamlegar verur eigum í samskiptum við umhverfi okkar. Nálgast umhverfið okkur í gegnum skynfærin eða teygjum við okkur eftir því? Þegar ég hrífst á djúpan hátt af náttúrunni, í gegnum skynjun, tengist ég henni. Þessi merkingar bæra reynsla er sem marglaga skynjun þar sem hvert lagið vefst um annað innra með mér og myndar nokkurs konar pólýfóníu.” 

Björg Eiríksdóttir (f. 1967) lauk MA í listkennslu frá HA vorið 2017, diploma í myndlist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2003 og BEd frá KHÍ 1991. Hún starfar við myndlist, samhliða kennslu myndlistargreina við VMA. Þessi ellefta einkasýning Bjargar er afrakstur starfslaunaárs hjá Akureyrarbæ.