Úrval, II. hluti



Úrval, II. hluti - valin verk úr safneign Listasafnsins á Akureyri
Salur 08
05.12.2020-14.11.2021

Snemma á fjórða áratug 20. aldar hóf Akureyrarbær formlega að kaupa listaverk og voru fyrstu kaupin málverk eftir Freymóð Jóhannsson, sem hér er nú til sýnis. Í dag á bærinn um 700 listaverk af fjölbreyttu tagi.

Eftir að Listasafnið á Akureyri var stofnað 1993 og falin umsjón með verkunum var sú stefna valin að hafa sem flest verk uppi á veggjum stofnana bæjarins. Þannig er safneignin sýnileg starfsmönnum og íbúum bæjarins.

Á þessari framhaldssýningu er athyglinni áfram beint að safneign Listasafnsins og til sýnis eru nokkur úrvalsverk. Við val á verkunum var fjölbreytni höfð að leiðarljósi sem og kynjajöfnun en safneignin samanstendur að meirihluta til af verkum eftir karlmenn. Það er þó áhugaverð staðreynd að verkum eftir konur fjölgar þegar nær okkur dregur í tíma.

Sýningarstjórar: Hlynur F. Þormóðsson og Þorbjörg Ásgeirsdóttir.