Einar Falur Ingólfsson - Griðastaðir

Einar Falur Ingólfsson
Griðastaðir
Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
4. mars - 16. apríl

Sýningin Griðastaðir er úrval ljósmyndaverka úr fjórum tengdum seríum sem Einar Falur Ingólfsson (f. 1966) hefur unnið að á undanförnum áratug. Svissneski sýningarstjórinn Christoph Kern valdi verkin á sýninguna úr myndröðunum Griðastaðir, Skjól, Reykjanesbrautin og Sögustaðir. Í verkunum tekst Einar Falur á við manninn og íslenska náttúru; við náttúruöflin, hvernig mennirnir reyna að lifa í og með náttúrunni, laga hana að þörfum sínum, verjast henni á stundum en jafnframt leita í henni skjóls. Verkin eru öll tekin á 4 x 5 tommu blaðfilmu.

Ljósmyndaverk Einars Fals hafa á undanförnum árum verið sýnd á einka- og samsýningum í söfnum og sýningarsölum á Íslandi, á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum. Einar Falur er með BA-gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York. Hann starfar sem myndlistarmaður, rithöfundur og blaðamaður.