Stúlka með hjól



Louisa Matthíasdóttir
Stúlka með hjól
Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
9. desember 2017 - 11. febrúar 2018

Louisa Matthíasdóttir (1917-2000) var einn af framsæknustu listamönnum sinnar kynslóðar. Heilir og skýrir myndfletir og tærir og einfaldir litir, einkenna verk hennar. Louisa stundaði nám í Evrópu og í Bandaríkjunum og var búsett í New York frá árinu 1942. Hún hélt þó sambandi við Ísland og í verkum hennar má glöggt sjá áhrif íslensks landslags og birtu. Louisa málaði einnig uppstillingar, samferðafólk og sjálfsmyndir sem sjá má á þessari sýningu.  

Sýningin Stúlka með hjól er byggð á sýningunni Kyrrð sem Listasafn Reykjavíkur setti upp á Kjarvalsstöðum fyrr á þessu ári. Jón Proppé, listheimspekingur, var sýningarstjóri að þeirri sýningu og mun hann flytja fyrirlestur um verk Louisu á Þriðjudagsfyrirlestri í Listasafninu, Ketilhúsi 23. janúar næstkomandi. Verkin á sýningunni eru fengin á láni hjá Listasafni Reykjavíkur, hjá Temmu Bell dóttur Louisu og úr einkasafni. 

Með sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur er framhaldið röð sýninga á verkum merkra íslenskra myndlistarkvenna. Sýningin Stúlka með hjól kemur þannig í kjölfarið á sýningum á verkum Elísabetar Geirmundsdóttur og Nínu Tryggvadóttur í Listasafninu á Akureyri.