Endurvarp

Mireya Samper
Endurvarp
Listasafnið á Akureyri, 13. júní - 22. ágúst 2015

Mireya Samper útskrifaðist frá Ecole d’Art de Luminy í Marseille í Frakklandi 1993. Hún stundaði einnig
nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987-90 og Academia di Bologna á Ítalíu 1992. Hún hefur
haldið fjölda einkasýninga á Íslandi og erlendis auk þess að taka þátt í fjölmörgum samsýningum. Mireya
er stofnandi, framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi alþjóðlegu listahátíðarinnar Ferskir vindar.
Sýningin Endurvarp endurspeglar ferli og áhrif sem Mireya hefur unnið með og upplifað, bæði á Íslandi og
í Japan, undanfarin misseri. Fjallað er um innri og ytri kosmós, óendanleikann, eilífðina, endurtekninguna
og hringrásina – innri og ytri hringrás.

Á sýningunni er að finna innsetningu, tví- og þrívíð verk eftir Mireyu ásamt verkum eftir japönsku
gestalistamennina Tomoo Nagaii sem samdi hljóðverk með innsetningunni og vídeó verk eftir Higuma
Haruo unnið uppúr samvinnu hans og Mireyu með sömu innsetningu. Innsetningin er einskonar
„íhugunarrými“ – gestum sýningarinnar býðst að fara inn í rýmið, setjast eða leggjast og gefst þar tækifæri
til íhugunar. Þá er einnig japanska gjörningalistakonan Kana Nakamura þátttakandi í sýningunni.
Pappírsverkin á sýningunni eru öll unnin á japanskan washi pappír og flest þeirra með tækni sem Mireya
hefur þróað og gerir þau ljóshleypin og kallar fram nýja eiginleika í pappírnum.