Völundarhús plastsins

Jonna – Jónborg Sigurðardóttir
Völundarhús plastsins
Listasafnið á Akureyri, Vestursalur, 30. janúar - 11. febrúar

Völundarhús plastsins er innsetning sem á að gera áhorfendur meðvitaða um umhverfisáhrif plastnotkunar. Undanfarin ár hefur Jonna (f. 1966) unnið ýmis verk innblásin af ofneyslu og sóun. Hún vill vekja athygli á að hver manneskja getur lagt sitt af mörkum í umhverfismálum, svo sem með endurnýtingu og notkun fjölnota innkaupapoka. Jonna mun vinna verk úr endurunnu plasti í „klefanum“ í Vestursal Listasafnsins meðan á sýningu stendur. Jonna útskrifaðist úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 1995 og sem fatahönnuður frá Københavns Mode- og Designskole 2011. Myndlist hennar spannar vítt svið, allt frá málverki til innsetninga. Hún hefur verið mjög virk í listalífinu á Akureyri síðustu árin; haldið einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og staðið fyrir uppákomum.