Karl Guðmundsson

Karl Guðmundsson
Lífslínur
04.12.2021-06.02.2022
Salur 11 

Listferill Karls Guðmundssonar spannar nú rúmlega tvo áratugi. Hann hefur haldið einkasýningar frá 2000 og jafnframt tekið þátt í fjölda samsýninga. 

Karl hóf nám í Myndlistaskólanum á Akureyri fimm ára gamall undir handleiðslu Rósu Kristínar Júlíusdóttur og útskrifaðist af myndlistabraut Verkmenntaskólans á Akureyri 2007. Þau hafa unnið saman síðan. Í upphafi sem kennari og nemandi, en nú sem samstarfsfélagar í listinni. Verkin á sýningunni eru myndrænn afrakstur samtals þeirra og samleiks. Flest þeirra eru máluð á striga, gler og plexígler. Samstarfsfélagar á sýningunni eru myndlistarmennirnir Arna Valsdóttir og áðurnefnd Rósa Kristín Júlíusdóttir.

Karl er mál- og hreyfihamlaður, en tekst engu að síður að koma skýrt til skila þeirri næmu, listrænu tilfinningu sem býr innra með honum. Hann var útnefndur listamaður Listar án landamæra 2015.

Sýningarstjóri: Rósa Kristín Júlíusdóttir.