A! Gjörningahátíð 2018



A! Gjörningahátíð

Listasafnið, Ketilhús og víðar
8. - 11. nóvember 2018

A! er fjögurra daga gjörningahátíð sem nú er haldin í fjórða sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Menningarfélags Akureyrar, Leikfélags Akureyrar, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Reykjavík Dance Festival og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.

Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur A! Gjörningahátíðar eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Hátt í 2.000 ánægðir gestir hafa sótt hátíðina hverju sinni og notið líflegra gjörninga. Samhliða A! fara fram tónlistarhátíðin Iceland Airwaves og vídeólistahátíðin Heim auk viðburða utan dagskrár (off venue).