Útskriftarsýning VMA

Nemendur listnáms- og hönnunarbrautar VMA
Útskriftarsýningar VMA 2016
Listasafnið á Akureyri, Ketilhús, 30. apríl - 15. maí

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið og annars vegar settar upp í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er annað árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri. Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst. Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með. Nemendur fá eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.