Nemendasýningar VMA 2022

Nemendur listnáms- og hönnunarbrautar VMA
Útskriftarsýning
07.05.2022-15.05.2022 / 19.11.2022-27.11.2022
Salur 11

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og
hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í
lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er níunda árið í röð sem þær eru haldnar í
samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst
tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst.
Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin
sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með.

Samhliða öðru námi fá nemendur eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og
uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem
frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.