Halldóra Helgadóttir



Halldóra Helgadóttir
Verkafólk
Salur 01
5. október 2019 - 19. janúar 2020

Á árunum eftir stríð var mikill uppgangur í iðnaði á Akureyri og voru flestir bæjarbúar tengdir verksmiðjunum á Gleráreyrum á einhvern hátt, enda voru þær stærsti vinnuveitandinn í bænum. Starfsemi verksmiðjanna lagðist endanlega af á tíunda áratugnum og var verslunarmiðstöð reist á svæðinu skömmu síðar. Nú er svo komið að það eina sem eftir stendur af þessarri merku sögu er að finna á söfnum bæjarins. 

Til heiðurs horfnum tímum og sérstaklega því fólki sem vann á verksmiðjunum er þessi sýning sett saman, en einnig til að minna á hvað starfsemi verksmiðjanna átti stóra hlutdeild í bæjarlífinu á  Akureyri.

Halldóra Helgadóttir (f. 1949) lauk námi í málaradeild Myndlistaskólans á Akureyri 2000 og hefur síðan haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum bæði erlendis og innanlands.