GÓMS - Tvívirkni

Sýningin Tvívirkni er framhald af hugmyndavinnu GÓMS tvíeykisins sem Georg Óskar og Margeir Dire skipa. Þeir hafa bundist sjónrænum böndum í einlægu bræðralagi og hér birtast dreggjar karlmennskunnar á sinn fegursta hátt.

Í verkum GÓMS tvíeykisins má glögglega sjá að allar hugmyndir hafa ákveðið vægi og hlaðast saman á einum myndfleti sem endurspeglar andrúmsloft og undirliggjandi samhengi hlutanna. Útkoman er aðferðafræði sem kallast ?absorbism? eða ?óbeislað hugmyndaflæði?. Á sýningunni renna tveir hugarheimar saman í einn undir einkunnarorðunum ?Gera meira, blaðra minna!?

Sýningin stendur til 31. ágúst. Aðgangur er ókeypis.