Sköpun utan línulegrar dagskrár IV

Sköpun utan línulegrar dagskrár – Skapandi samvera fyrir fjölskyldur 

Verkefnið felst í því að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni listsmiðju á vegum Listasafnsins á Akureyri. Í samvinnu við sína nánustu fá börn tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk óháð stað og stund. Lögð er áhersla á að þátttakendur fá að sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem sett verður upp í Listasafninu á Akureyri. Umsjón með smiðjunni hefur Brynhildur Kristinsdóttir myndlistarmaður og kennari. 

Frábært tilefni fyrir fjölskyldur að njóta samveru og skapa utan línulegrar dagskrár. 

Leiðbeiningar: 

  • Fjölskyldan horfir saman á listsmiðjuna. Myndbandið er aðgengilegt hér á heimasíðu Listasafnsins á Akureyri og á samfélagsmiðlum.
  • Í sameiningu vinnur fjölskyldan sína eigin útgáfu af verkinu á þeim tíma sem hentar best.
  • Ekki er nauðsynlegt að koma í safnið til að vinna verkefnið.
  • Þegar listaverkið er tilbúið má koma með það í móttöku Listasafnsins á Akureyri. Opið er alla daga frá kl. 12 til 17.
  • Skila þarf verkum fyrir 16. nóvember 2022 og passa að þau séu merkt.
  • Laugardaginn 19. nóvember 2022 opnar sýning á verkunum í safnfræðslurými safnsins.
  • Allir sem skila inn listaverki fá glaðning.
  • Sýningu lýkur 18. desember 2022 og þá fá listamenn verkin sín til baka. 

Ef spurningar vakna má hafa samband við Heiða Björk Vilhjálmsdóttur fræðslufulltrúa heida@listak.is


Verkefnið er styrkt af SSNE og Akureyrarbæ.