Sköpun utan línulegrar dagskrár: Skapandi danslistasmiðja fyrir fjölskyldur

Verkefnið felst í að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni danslistasmiðju á vegum Listasafnsins á Akureyri. Í samvinnu við sína nánustu fá börn tækifæri til að skapa sitt eigið dansverk óháð stað og stund. Lögð er áhersla á að þátttakendur taki dansinn upp á myndband sem sýnt verður á sérstakri sýningu í Listasafninu.

Frábært tilefni fyrir fjölskyldur að njóta samveru og skapa utan línulegrar dagskrár. Umsjón með smiðjunni hefur Urður Steinunn Önnudóttir Sahr, dansari og danskennari. 

Leiðbeiningar: 

  • Fjölskyldan horfir saman á danslistasmiðjuna. Myndbandið er aðgengilegt HÉR á heimasíðu Listasafnsins á Akureyri og á samfélagsmiðlum. 
  • Í sameiningu skapar fjölskyldan sinn eigin dans á þeim tíma sem hentar best. 
  • Þegar dansinn er tilbúinn er hann tekinn upp á myndband. 
  • Myndbandið má annað hvort senda í gegnum wetransfer.com, eða öðru sambærilegu, á netfangið heida@listak.is eða koma því í móttöku safnsins á USB lykli. 
  • Listasafnið á Akureyri er opið alla daga frá kl. 12 til 17.
  • Skila þarf verkum fyrir 1. desember 2021. 
  • Allir sem skila inn dansupptöku fá glaðning. 
  • Frá og með laugardeginum 4. desember verða myndböndin sýnd í safnfræðslurými safnsins. 
  • Sýningu lýkur 3. janúar 2022. 

Ef spurningar vakna má hafa samband við Heiða Björk Vilhjálmsdóttur fræðslufulltrúa heida@listak.is. Verkefnið er styrkt af SSNE.