Flýtilyklar
Afmæli – opið fyrir umsóknir
			
					24.01.2023			
	
	Listasafnið á Akureyri efnir til sýningar á verkum eftir norðlenska myndlistarmenn 2. júní-24. september 2023 og hefur verið opnað fyrir umsóknir. Að þessu sinni skulu myndlistarmennirnir vinna með þemað, Afmæli, í verkum sínum. Dómnefnd velur úr umsóknum listamanna sem búa og/eða starfa á Norðurlandi eða hafa tengingu við svæðið. Umsóknarfrestur er til og með 6. mars. HÉR má sækja um.
Vor/Sumar/Haustsýningar Listasafnsins á Akureyri eru tvíæringur og endurvekur þá góðu hefð að sýna hvað listamenn á svæðinu eru að fást við. Hún verður því fjölbreytt og mun gefa góða innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi. Gefin verður út sýningarskrá með sýningunni.
Leit
 
                     
				
			 
					 
										