Allt til enda í Listasafninu

Um síðustu helgi fór fram í Listasafninu á Akureyri listvinnustofa í verkefninu Allt til enda. Friðrik Steinn Friðriksson, vöru- og upplifunarhönnuður, bauð ungmennum á aldrinum 12 til 15 ára að skapa módel af húsgögnum sem bæði eru míní útgáfa af venjulegum hlutum og skref í átt að því að smíða í fullri stærð. Unnið var í skala og efni sem auðvelt er að yfirfæra og stuðst við fagurfræði Enzo Mari og Rietveld.  

Börnin tóku virkan þátt í öllu ferlinu, allt frá því að leita sér innblásturs, skapa verkin í samstarfi við Friðrik og sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem Hlynur Hallsson, safnstjóri, opnaði formlega í safnfræðslurými Listasafnsins. Sýningin stendur til 17. desember 2023. 

Allt til enda er styrkt af Safnasjóði og Akureyrarbæ. Þar fá börn á grunnskólaaldri tækifæri til að láta ljós sitt skína á sinni eigin sýningu sem þau undirbúa frá upphafi til enda. 

Sýnendur hönnunarvinnustofunnar eru: 

Elínborg Una Árnadóttir,
Emil Halldórsson,
Freyja Wyrwich,
Fríða Harðardóttir,
Magnús Emil Skúlason,
Númi Kristínarson,
Sigurður Hólmgrímsson,
Stefanía Hólm Skjaldardóttir. 

Verkefnastjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi.

Myndir: Almar Alfreðsson.