Þriðjudagsfyrirlestur: Jón B.K. Ransu

Þriðjudagsfyrirlestur: Jón B.K. Ransu
Jón. B.K. Ransu.

Þriðjudaginn 4. febrúar kl. 17-17.40 heldur Jón B. K. Ransu, myndlistarmaður, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Formleysa, úrkast og blendingsform. 

Fjallað verður um formgerðir í samtímalist sem framkalla togstreitu á milli andstyggðar og aðlöðunar. Þessar ákveðnu formgerðir fá fyrst umfjöllun í örtextum franska heimspekingsins Georges Battaille en kristallast svo enn frekar í kenningum annars vegar bandaríska listfræðingsins Rosalind Krauss,og franska heimspekingsins Yves Alain-Boisog fransk-búlgarska heimspekingsins Juliu Kristeva hins vegar.

Í fyrirlestrinum er megin áhersla lögð á samtímamyndlist en einnig eru ýmiss kvikmyndaminni skoðuð til samanburðar.

Jón B. K. Ransu er fæddur í Reykjavík 1967. Hann er myndlistarmaður menntaður í Hollandi 1990-1995 og hefur sinnt myndlistarsköpun jöfnum höndum síðan.

Ransu starfar einnig sem fræðimaður og er höfundur þriggja bóka um samtímalist, Listgildi samtímans: Handbók um samtímalist á Íslandi (2012), Málverkið sem slapp út úr rammanum (2014) og Hreinn hryllingur: Form og formleysur í samtímalist (2019). Þá var hann meðhöfundur bókanna Gerður: Meistari málms og glers (2010) og Valtýr Pétursson (2017).

Ransu hefur einnig starfað sem sýningarstjóri og skipulagt sýningar fyrir Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Nýlistasafnið. Hann var einn af sýningarstjórum tvíæringsins Momentum 9: Alienation í Moss í Noregi árið 2017 og nýafstaðinni sýningu í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni, sem bar heitið Fullt af litlu fólki, og fjallaði um birtingu andlegrar iðkunar í myndlist.

Ransu er deildarstjóri við Listmálarabraut Myndlistaskólans í Reykjavík, sem er tveggja ára diplómanám þar sem áhersla er lögð á að kenna aðferðir málaralistar.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Marco Paoluzzo, ljósmyndari, Snorri Ásmundsson, listamaður, Ragnheiður Eríksdóttir, tónlistarkona, Kristín Dýrfjörð, dósent við Háskólann á Akureyri, og Kenny Nguyen, myndlistarmaður.