Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Boðið verður upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu á Akureyri sunnudaginn 26. maí kl. 11-12. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá samsýningu 30 norðlenskra myndlistarmanna, Vor.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.