Fjölskylduleikur í sumar

Listasafnið býður uppá skemmtilegan fjölskylduleik í sumar um sýninguna Gjöfin til íslenzkrar alþýðu. Tilvalið tækifæri fyrir börn og fullorðna til að staldra við og uppgötva eitthvað nýtt. Bragðgóð verðlaun í boði! Aðgangseyrir inn á safnið er ókeypis fyrir 18 ára og yngri. 

Sýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri og Listasafns ASÍ. Verkefnið er styrkt af Safnaráði og hluti af Listasumri. Fleiri spennandi viðburði á Listasumri má finna á HÉR