Klippismiðja á laugardaginn

Klippismiðja á laugardaginn
Egill Logi Jónasson.
Laugardaginn 15. maí kl. 11-12 verður haldin klippismiðja fyrir 12-16 ára með Agli Loga Jónassyni, sem einnig gengur undir listamannaheitinu Drengurinn fengurinn. Fjöldi takmarkast við 10. Engin skráning.

Í smiðjunni gefst þátttakendum færi á að með ævintýraheima í klippimyndum, teikningu og textabrotum. Egill Logi hefur með sér sýnishorn af sinni list og veitir þannig innblástur fyrir sköpunina.
Egill Logi Jónasson / Drengurinn fengurinn (f. 1989) útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri og síðar frá Listaháskólanum í Reykjavík 2016. Hann er hluti listhópsins Kaktus sem hefur aðsetur á jarðhæð Ketilhússins.
 
Uppbyggingarsjóður SSNE styrkir smiðjuna. Norðurorka styrkir barna- og fræðslustarf Listasafnsins á Akureyri. Verkefnið er hluti af Barnamenningarhátíð.