Leiðsögn VMA

Í dag, fimmtudaginn 13. maí, kl. 12-13 verður boðið upp á leiðsögn um útskriftarsýningu VMA, Kompakt, sem var opnuð um síðustu helgi. Nemendurnir Katrín Helga Ómarsdóttir, Kasia Rymon Lipinska og Margrét Lilja Álfgeirsdóttir ásamt Helgu Björgu Jónasardóttur, kennara, taka á móti gestum og segja frá sýningunni og einstaka verkum. Listasafnið verður að venju opið til kl. 17 í dag, uppstigningardag.