Lengi skal manninn reyna framlengd

Lengi skal manninn reyna framlengd
Þorvaldur Þorsteinsson.

Vegna lokunar á síðasta ári sökum Covid-19 faraldursins og breyttra aðstæðna í kjölfarið verður yfirlitssýning á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar, Lengi skal manninn reyna, framlengd til og með 11. apríl næstkomandi. Í tengslum við sýninguna verður haldið málþing um ævi og störf Þorvaldar í Listasafninu 13. febrúar undir yfirskriftinni Akademíur. Leiðsögn um sýninguna verður m.a. 11. febrúar og 4. mars og er aðgangur innifalinn í miðaverði. 

Þorvaldur Þorsteinsson var afkastamikill listamaður og kennari sem nýtti sér flesta miðla í listsköpun. Auk þess að fást við myndlist samdi hann skáldsögur, leikrit, ljóð og tónlist og varð landsþekktur fyrir Vasaleikhúsið sem flutt var í Ríkisútvarpinu 1991 og síðar sýnt í sjónvarpi. Skáldsaga hans, Skilaboðaskjóðan, sló einnig rækilega í gegn þegar hún kom út 1986 og var síðar færð í leikbúning og sýnd í Þjóðleikhúsinu sem söngleikur 1993. Fjórar bækur Þorvaldar um Blíðfinn hafa verið þýddar á fjölda tungumála og Borgarleikhúsið setti upp leikrit hans And Björk of Course 2002. Hann hélt margar einkasýningar, jafnt á Íslandi sem erlendis, og tók þátt í alþjóðlegum samsýningum víða um heim.

Sýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins og Hafnarborgar í Hafnarfirði, en þar verður hún sett upp haustið 2021.