List fyrir alla

Vefsíðan listfyriralla.is fór í loftið á dögunum en henni er ætlað að miðla listviðburðum um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla er lögð á menningu fyrir börn og menningu með börnum.

Nú má nálgast yfirlit yfir öll menningarhús, sýningar, söfn og setur sem miðla list og menningu til barna og ungmenna á einum stað á vefnum.

Á vef verkefnisins er að finna ítarlegar upplýsingar um barnamenningu og listviðburði fyrir ungt fólk sem gagnast bæði skólum og fjölskyldum. List fyrir alla er verkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem hefur verið starfrækt síðastliðin 5 ár. Markmið þess er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafnar þannig aðgengi þeirra að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla er lögð á list fyrir börn og list með börnum og leitast við sinna öllum listgreinum jafnt svo nemendur eigi þess kost að kynnast fjölbreytni listanna, íslenskum menningararfi og list frá ólíkum menningarheimum.

Um 10.000 nemendur á grunnskólaaldri hafa að meðaltali sótt viðburði á vegum Listar fyrir alla á hverju skólaári en rúmlega 90% grunnskóla landsins hafa tekið þátt í verkefninu. Meðal þeirra 27 listviðburða sem í boði verða í vetur eru Ein stór fjölskyldu með Gunna og Felix, grímuverðlaunasýningin Allra veðra von, Goðsagnakenndar forynjur og furðurverur Kristínar Rögnu, og verkefnið Stafrænar styttur í samstarfi við Listasafn Einars Jónssonar.