Listasafnið verðlaunað

Listasafnið verðlaunað
Steinþór Kárason.

Í gær á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu var arkitektastofunni Kurt og Pí ehf. veitt byggingarlistarverðlaun fyrir stækkun og endurbætur á Listasafninu á Akureyri. Meginmarkmið verkefnisins voru að skapa heilsteypta listasafnsbyggingu með sýningarrýmum af bestu gerð auk þess sem allur aðbúnaður starfsfólks sem og aðstaða fyrir umsjón og meðhöndlun listaverka var bætt. Þetta þykir hafa tekist afar vel og unnið með virðingu úr ágætu höfundarverki Þóris Baldvinssonar og stuðlað með því að húsavernd og viðgangi góðrar byggingarlistar.

Þá var tilkynnt um val á bæjarlistamanni Akureyrar 2019-2020 og varð tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Pálmi Gunnarsson þess heiðurs aðnjótandi. Pálmi á að baki langan starfsferil og fyrir löngu orðinn landsþekktur listamaður sem söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar fyrir hartnær hálfri öld. Pálmi ætlar að einbeita sér að tveimur verkefnum á starfslaunatímanum. Fyrra verkefnið er sjónvarpsþáttaröð um tónlistartengt efni þar sem markmiðið er að gefa áhorfendum innsýn í þann fjölbreytta hóp fólks sem tengist tónlistarsköpun með einum eða öðrum hætti. Síðara verkefnið er skáldsaga sem ber vinnuheitið Lennon, sagan byggir á stuttmyndahandriti sem Pálmi vann fyrir nokkrum árum en hefur síðan verið að þróa það í átt að skáldsögu.

Akureyrarstofa veitir að auki heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs og er hún veitt einstaklingum sem hafa með framlagi sínu stutt við og auðgað menningarlíf bæjarins. Í ár voru þrír einstaklingar fyrir valinu. Tónlistarmaðurinn Michael Jón Clarke, fyrir þátt sinn í öflugu tónlistar- og menningarlífi Akureyrarbæjar, Elínborg Loftsdóttir tónmenntakennari og kórstjóri fyrir mikilvægt framlag til tónlistarþátttöku og tónlistaruppeldis ungra Akureyringa.

Þriðja heiðursviðurkenningin er helguð minningu Ágústar Þórs Árnasonar mannréttindafrömuðar, skólamanns og listunnanda sem féll frá nýverið. Hann lagði mikið til menningar- og skólamála og lagði sig sérstaklega fram um að færa heimspeki og heimspekilega umræðu nær almenningi.

Forseti bæjarstjórnar, Halla Björk Reynisdóttir, veitti fjórar jafnréttisviðurkenningar fyrir framlag til jafnréttismála á Akureyri. Viðurkenningarnar hlutu Akureyrarakademían, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna og Valgerður H. Bjarnadóttir.

Tónlistaratriði á Vorkomunni voru í höndum kammerkórsins Hymnodiu undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar organista.