Opnun á laugardaginn

Laugardaginn 23. nóvember kl. 15 verður útskriftarsýning nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA, Ekki hugmynd, opnuð í Listasafninu á Akureyri. 

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er fimmta árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst.

Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með. Samhliða öðru námi fá nemendur eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.

Nemendur:

Anghel Momiji Rico Capin, Berglind Eva Rúnarsdóttir, Elín Helga Þórarinsdóttir, Eva María Sigurðardóttir, Jóhannes Fossdal, Lena Þorvaldsdóttir, Lilja Dögg Óladóttir, Magnús Mar Loog, Telma Eir Aradóttir.