Opnun á sýningu Kristínar K.Þ. Thoroddsen frestað

Í kjölfarið á hertum samkomutakmörkunum verður opnun á yfirlitssýningu á verkum Kristínar K.Þ. Thoroddsen, KTh – Málverk og ljósmyndir, sem fyrirhuguð var 17. október, frestað fram til 5. desember næstkomandi. Sýning Snorra Ásmundssonar, Franskar á milli, hefur jafnframt verið framlengd til og með 29. nóvember.

Kristín Katrín Þórðardóttir Thoroddsen (1885-1959) ólst upp í Reykjavík og fékk þar tilsögn í tónlist og myndlist eins og títt var um dætur efri stéttar Reykvíkinga á þessum tíma. Hún hélt til Edinborgar 1904 í myndlistanám. Á fimmta áratug 20. aldar tók Kristín upp þráðinn að nýju er hún dvaldist í New York og stundaði þar myndlist hjá Art Student´s League.

Kristín bjó á Akureyri 1907-1932 ásamt manni sínum Steingrími Matthíassyni héraðslækni og börnum þeirra. Þau slitu samvistum 1932 og hélt Kristín ásamt yngstu dóttur sinni, sem þá var 11 ára, til Indlands til að starfa fyrir Alþjóðamiðstöð Guðspekihreyfingarinnar í höfuðstöðvum hennar í Adyar.

Kristín færði Akureyrarkirkju tvö málverk að gjöf árið 1942 sem síðan þá eiga sinn sess í skipi kirkjunnar. Bera verkin skýrt vitni um faglega skólun í myndlist. Hún átti um margt sérstæðan feril og var vel heima í framsæknum hugmyndum síns samtíma. Verk Kristínar hafa ekki áður verið sýnd opinberlega, fyrir utan málverkin tvö í kirkjunni. Á sýningunni má sjá valin málverk ásamt ljósmyndum frá ferð hennar til Austurlanda.

Sýningarstjóri: Þóra Sigurðardóttir, myndlistarmaður.