Síðasti Mysingur sumarsins

Síðasti Mysingur sumarsins
Helgi Þórsson.

Þriðji og síðasti Mysingur sumarsins fer fram á Akureyrarvöku, laugardaginn 26. ágúst kl. 17. Að venju verða tónleikarnir haldnir í Mjólkurporti Listasafnsins á Akureyri og að þessu sinni koma fram Helgi og hljóðfæraleikararnir og Miomantis. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana og hægt verður að kaupa mat og drykki frá Ketilkaffi á svæðinu. Tónleikaröðin er hluti af Akureyrarvöku og unnin í samstarf Akureyrarbæjar, Listasafnsins á Akureyri, Ketilkaffis og Geimstofunnar.

Helgi og hljóðfæraleikararnir eru goðsagnakennt þjóðlagapönkband úr Eyjafirði. Þeir munu gera sitt allra besta til að trylla lýðinn með sinni landsfrægu spilagleði..

Miomantis er rokkhljómsveit frá Akureyri sem hefur sett varanlegt mark sitt á jaðarsenu bæjarins undanfarin ár með metnaðarfullu tónleikahaldi og reglulegri útgáfu á tónlist. Sveitin er undir sterkum áhrifum frá proggi, gruggi og pönki.