Styrkur frá Listaverkasafni Valtýs Péturssonar

Styrkur frá Listaverkasafni Valtýs Péturssonar
Valtýr Pétursson, Kompósisjón, 1955.

Listasafninu á Akureyri hlotnaðist sá heiður á dögunum að hljóta styrk úr sjóði Listaverkasafns Valtýs Péturssonar að upphæð 1.500.000, en þann 27. mars síðastliðinn voru 105 ár liðin frá fæðingu Valtýs. Listaverkasafnið var stofnað 2011 til að halda ævistarfi hans til haga. Styrknum skal varið í kaup á listaverkum eftir ungt myndlistarfólk. Tilkynnt verður um kaupin í aprílmánuði, en auk Listasafnsins á Akureyri hlaut Listasafn Íslands einnig styrk úr sjóðnum. Er stjórn sjóðsins þakkað traustið.

Valtýr Pétursson (1919−1988) var afkastamikill listmálari og meðal brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi. Hann átti litríkan og margslunginn feril, var ötull gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi myndlistarmanna og því mjög við hæfi að afmæli hans sé fagnað með því að styrkja stoðir ungs myndlistarfólks.