Þriðjudagsfyrirlestur: AlmaDís Kristinsdóttir

Þriðjudagsfyrirlestur: AlmaDís Kristinsdóttir
Alma Dís Kristinsdóttir.

Þriðjudaginn 16. nóvember kl. 17-17.40 heldur AlmaDís Kristinsdóttir, safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Safnfræðsla sem hreyfiafl. Þar mun hún fjalla um fræðsluhlutverk safna á fræðilegum og praktískum nótum. Aðgangur er ókeypis.

AlmaDís Kristinsdóttir lauk doktorsnámi í safnafræði frá Háskóla Íslands 2019 og hefur rannsakað fræðslumál safna um langa hríð. Í fyrirlestrinum mun hún m.a. kynna hagnýtt líkan sem byggt er á niðurstöðum doktorsrannsóknarinnar og til þess fallið að auka meðvitund um öfluga fræðslumöguleika til langs tíma. Hún lauk BFA prófi í hönnun frá Massachusetts College of Art í Boston 1995, prófi í kennslufræðum til kennsluréttinda og M.Ed. prófi í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri 2007. AlmaDís hefur sinnt kennslu í deild félags-, mann- og þjóðfræði við Háskóla Íslands um árabil og á að baki langan feril sem starfsmaður átta ólíkra safna.

Þetta er síðasti Þriðjudagsfyrirlestur ársins, en þeir munu hefja aftur göngu sína í janúar 2022. Fyrirlestraröðin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri og Gilfélagsins.