Þriðjudagsfyrirlestur: Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir

Þriðjudagsfyrirlestur: Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir
Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir.

Þriðjudaginn 1. október kl. 17-17.40 heldur Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir, nemi í fatahönnun, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Hvað nú? Í fyrirlestrinum mun hún fjalla um Central Saint Martins í London þar sem hún stundar nám um þessar mundir, fjölbreytileika skólans og viðmið hans um sjálfbærni og framtíð fatahönnunar.  

Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir útskrifaðist frá hönnunar- og textílbraut VMA og stundar nú nám í fatahönnun með áherslu á prent í Central Saint Martins í London. Síðasta ár hefur hún verið í starfsnámi hjá Versace, Marc Jacobs og Chanel. Guðbjörg Þóra leggur mikla áherslu á sjálfbærni í sinni vinnu og leitar leiða til þess að rannsaka ný efni og textílaðferðir sem henta framtíðinni og eru ekki mengandi fyrir umhverfið.  

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Halldóra Helgadóttir, myndlistarkona, Arndís Bergsdóttir, safnafræðingur, Natalie Saccu de Franchi, kvikmyndagerðarkona, Matt Armstrong, myndlistarmaður.