Vandræðalega skemmtileg leiðsögn

Vandræðaskáldin Sesselía Ólafs og Vilhjálmur Bragason verða með óhefðbundna leiðsögn fyrir alla aldurshópa um sýningar safnsins í sumar og í haust. Sú fyrsta fer fram næstkomandi sunnudag, 5. júlí, kl. 15.
 
Aðgangur er innifalinn í aðgangseyri á safnið og frítt fyrir handhafa árskorta. Viðburða- og vöruþróunarsjóður Akureyrar styrkir leiðsögn Vandræðaskálda.