A! Gjörningahátíð 2016

A! Gjörningahátíð verður haldin í annað sinn dagana 1. - 4. september 2016 í samvinnu Listasafnsins á Akureyri, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Reykjavík Dance Festival, Menningarfélags Akureyrar / Leikfélags Akureyrar, Listhúss og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Á hátíðinni fremur myndlistar- og sviðslistafólk gjörninga og setur upp gjörningatengd verk.

HÉR má sjá dagskrá A!

A! Gjörningahátíð sló í gegn þegar hún var haldin í fyrsta skipti í september í fyrra og sóttu um 1.500 ánægðir gestir hátíðina. Þátttakendur voru vel þekktir gjörningalistamenn, leikarar og ungir, upprennandi listamenn. Vídeólistahátíðin Heim var haldin á Akureyri á sama tíma sem og „off venue“ dagskrá víðsvegar um bæinn.

Margrét Elísabet Ólafsdóttir listfræðingur sagði í pistli í Víðsjá á Rás 1 um hátíðina: "Dagskrá Gjörningahátíðarinnar A! var því ekki aðeins fjölbreytt heldur í heildina einkar vel heppnuð. Sú ákvörðun að stefna saman eldri listamönnum og upprennandi, gestum og heimamönnum virðist vera góð uppskrift að hátíð sem vonandi verður árlegur viðburður."

Gjörningarnir á A! 2016 fara fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, Samkomuhúsinu, Hofi, Flóru, Mjólkurbúðinni, í Listagilinu, Sal Myndlistarfélagsins, í göngugötunni og á fleiri stöðum á Akureyri og einnig í Hrísey.

Listamennirnir og hóparnir sem taka þátt að þessu sinni eru: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Aðalsteinn Þórsson, AK Litaker, Anna Richardsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Borgarasviðið, Gail Priest, Girilal Baars, Gosie Vervloessem, Ka Yee Li, Lárus H. List, Leikfélag Akureyrar, Michael Terren, Sara Björnsdóttir, Sebastian Franzén, Theatre Replacement, Thomas Watkiss og Yu Shuk Pui. 

Auk þess munu eftirtaldir listamenn koma fram á „off venue“ viðburðum: Aldís Dagmar Erlingsdóttir, Anton Logi Ólafsson, Bergþóra Einarsdóttir, Bíbí & Blaka / Fidget Feet, Egill Logi Jónasson, Freyja Eilíf, Hekla Björt Helgadóttir og Áki Sebastian Frostason, Jónborg Sigurðardóttir, Snorri Ásmundsson, Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Thora Karlsdottir og fleiri.

Samhliða A! fer fram vídeóalistahátíðin Heim, en þar taka þátt Arna Valsdóttir og Klængur Gunnarsson.

Guðrún Þórsdóttir er verkefnastýra A! Gjörningahátíðar og hún veitir nánari upplýsingar í síma 663 2848 og á netfanginu gunnathors@gmail.com.