Afmælisfagnaður

Kæra listafólk

Eins og allir væntanlega vita fer nú í hönd Akureyrarvaka og hátíðahöld í Listagilinu í tilefni 20 ára afmælis Listasafnsins á Akureyri. Með þessum pósti viljum við eindregið hvetja ykkur til að mæta í Gilið á laugardaginn og taka þátt í listamarkaði sem þar verður kl. 13-17. Hvernig sem veðrið verður getum við átt góða stund saman og haft gaman af þar sem Sjónlistamiðstöðin hefur leigt tjöld sem skýla munu fyrir veðri og vindum. Tjöldin eru tvö (samtals 80 fermetrar) og verða þau staðsett  á grasinublettinum milli Ketilhúss og Listasafns og ættu að rúma fjölmarga þátttakendur. Varðandi pláss í tjöldunum gildir sú regla að  fyrstur kemur, fyrstur fær og miðað við fjöldann í fyrra er ráðlegt að mæta snemma. Þátttaka ykkar er mikilvæg og hlökkum við sannarlega til að sjá ykkur sem flest á laugardag ? með sól í hjarta.