Afmæliskaffi í Listasafninu

Afmæliskaffi í Listasafninu
Elísabet Geirmundsdóttir.

Í dag, mánudaginn 16. febrúar, eru liðin 100 ár frá fæðingu Elísabetar Geirmundsdóttur, listakonunnar í Fjörunni. Við höldum upp á tímamótin og opnum Listasafnið kl. 12-17 á afmælisdaginn.

Ásgrímur Ágústsson sonur Elísabetar mun segja frá nokkrum verkum á sýningunni og hefst leiðsögnin kl. 15. Nýja kaffibrennslan býður upp á kaffi og Bakaríið við brúna býður upp á bollur í tilefni dagsins kl. 15-17. Verið velkomin.