Arna Valsdóttir - Staðreynd

Í Listasafninu stendur nú yfir sýning Örnu Valsdóttur, Staðreynd. Þar má sjá myndbandsverk sem Arna hefur sett upp á síðustu sjö árum ásamt nýju verki sem var sérstaklega gert fyrir þessa sýningu auk verksins La frá árinu 1988 sem markar ef til vill upphafið á rýmistengdum verkum Örnu. Arna lýsir sjálf best þeirri tilfinningu þegar sem hún skapar verkin: ?Ég hlusta mig inn í rýmið og reyni að fanga ?reynd staðarins? eða ??raun staðarins? í nútíð, fortíð og framtíð.?

Arna Valsdóttir nam myndlist við MHÍ og Jan van Eyck Academie í Hollandi þaðan sem hún lauk námi 1989. Í Hollandi var Arna þegar farin að gera tilraunir með nýja miðla tengdum gjörningum, tónlist, ljósmyndun og myndvörpun auk hefðbundnari myndlistar. Á þessum tíma fór hún einnig að flétta eigin söngrödd inn í verk sín. Þessar aðferðir hafa verið gegnumgangandi í sköpunarferli Örnu allt til dagsins í dag og hún hefur unnið margvísleg verk þar sem hún nýtir eigin rödd í fjölbreytt rýmisverk og gjörninga, bæði sem vídeóverk og innsetningar.