Áttu listaverk til láns?

Vegna yfirlitssýninga Elísabetar Sigríðar Geirmundsóttur (Listakonan í fjörunni) og Iðunnar Ágústsdóttur sem haldnar verða snemmma á næsta ári leitar Listasafnið að verkum þeirra til láns. Sýning Elísabetar stendur 10. janúar - 8. mars en sýning Iðunnar 17. mars - 19. apríl.

Ef þú átt verk eða veist um verk eftir listakonurnar sem sýna mætti í Listasafninu vinsamlega hafðu samband við Hlyn Hallsson safnstjóra í síma 461 2619 eða í pósti hlynurhallsson@sjonlist.is eða við Ásgrím Ágústsson ljósmyndara í asiljos@gmail.com varðandi sýningu Elísabetar en við Eirík Arnar Magnússon í síma 695 2227 eða í netfangið eirikurarnar@gmail.com varðandi sýningu Iðunnar.