Leiðsögn um sýningu Jan Voss

Boðið verður upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 9. apríl kl. 12.15 - 12.45 um sýningu Jan Voss, Með bakið að framtíðinni. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.

Spurningin „hvað er mynd?“ er undirliggjandi þáttur í viðfangsefnum Jan Voss. Þó að óhefðbundnar vinnuaðferðir hans hafi stöku sinnum kallað fram svipleiftur þess sem gætu hafa verið svör þá hefur leit hans – sem spannar ólíka miðla – ekki bent á neitt umfram það sem væri speglun af einhverju öðru.

Jan Voss er fæddur 1945 í Þýskalandi og búsettur í Amsterdam. Sem ungur listamaður vann hann við að teikna teiknimyndasögur sem hann prentaði sjálfur og gaf út. Hann gekk síðar til liðs við félaga sína þær Henriëtte van Egten og Rúnu Thorkelsdóttur og síðastliðin 30 ár hafa þau í sameiningu rekið hina einstöku jaðar bókaverslun Boekie Woekie en þar eru seldar bækur eftir listamenn.

Sýningin stendur til 10. maí og er opin þriðjudaga - sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.