Erindi um Friðþjóf Nansen

Erindi um Friðþjóf Nansen
Gunhild Hoogensen Gjørv.

Til að minnast Friðþjófs Nansen býður Háskólinn á Akureyri gestum og gangandi að hlýða á kveðjuerindi Gunhild Hoogensen Gjørv í Listasafninu, Ketilhúsi þriðjudaginn 18. desember kl. 16-17.

Gunhild er prófessors í átaka- og friðarfræðum við Háskólann í Tromsø og starfandi Nansen gestaprófessor við HA, um Friðþjóf Nansen, hinn kunna norska heimskautafræðing og húmanista, sem helgaði sig því að bæta úr neyð landflótta fólks eftir fyrra stríð.

Dagskráin hefst stundvíslega kl. 16.00 með ávörpum frá Einari Gunnarssyni sendiherra Íslands í málefnum norðurslóða, Carina Ekornes staðgengli sendiherra Noregs á Íslandi og Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra Akureyrar. Að erindinu loknu bjóða Háskólinn á Akureyri og utanríkisráðuneytið gestum að þiggja léttar veitingar undir ljúfum jólatónum.

Erindið fer fram á ensku og er opið öllum og endurgjaldslaust en æskilegt er að tilkynna þátttöku með tölvupósti á netfangið gunnarmg@unak.is.