Fimm áratugir í grafískri hönnun - leiðsögn í dag kl. 12

Í dag, fimmtudaginn 17. júlí, kl. 12.00 verður leiðsögn í Ketilhúsinu um sýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, mun þá leiða gesti um sýninguna og fræða um verk og störf Gísla. Aðgangur er ókeypis. Nánari upplýsingar um leiðsagnir í sumar má sjá hér að neðan:

  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 24. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett ? mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 24. júlí kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 31. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett ? mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 7. ágúst kl.12.00: Síðasta leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 14. ágúst, kl. 12.00: Síðasta leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett ? mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 21. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um sýningu Urta Islandica, Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 28. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um sýningu Urta Islandica, Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.