Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Boðið verður upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu sunnudaginn 28. apríl kl. 11-12. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu Margrétar Jónsdóttur og Kristínar Gunnlaugsdóttur, SuperBlack.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.