Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 26. janúar kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningum Elínar Pjét. Bjarnason, Handanbirta / Andansbirta, og Marzena Skubatz, HEIMAt.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.