Fjölskylduleiðsögn um sýningu Anítu

Fjölskylduleiðsögn um sýningu Anítu
Frá fjölskylduleiðsögn í sumar.

Laugardaginn 11. ágúst kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn um sýningu Anítu Hirlekar, Bleikur og grænn. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu Anítu. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listakonunnar.

Aðgangur er ókeypis.