Framlengdar sýningar

Sýningar Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur, Sýn í þokunni, og bandarísku listakonunnar Joan Jonas, Eldur og saga, 1985 / Volcano Saga, 1985 hafa verið framlengdar og munu nú standa til sunnudagsins 29. janúar næstkomandi. 

Joan Jonas (f. 1936) er frumkvöðull á sviði vídeó- og gjörningalistar og einn þekktasti myndlistarmaður samtímans. Hún starfar enn ötullega að sköpun nýrra verka, nú um fimmtíu árum eftir að hún hóf að sýna verk sín í heimaborginni New York í Bandaríkjunum. Jonas hefur haft víðtæk áhrif á samferðamenn sína, verk hennar hafa verið sýnd í helstu listasöfnum heims og hún hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna. Hún starfar sem prófessor við MIT; Massachussets Institute of Technology, og hefur kennt þar frá árinu 1998. Joan Jonas var fulltrúi Bandaríkjanna á Feneyjatvíæringnum árið 2015.

Joan Jonas kom til Íslands á níunda áratug liðinnar aldar og skilaði áhrifunum af þeirri heimsókn í verkinu Volcano Saga, frásagnarmyndbandi þar sem Tilda Swinton fer með hlutverk Guðrúnar Ósvífursdóttur í heitri laug umluktri hrjóstrugu eldfjallalandslagi. Þessi nána vísun í Laxdælu og drauma Guðrúnar, sem rekur sig eftir verkinu eins og rauður þráður, var forleikur að frekari verkum Jonas byggðum á íslenskum bókmenntum, fornum og nýjum.

Íslandstengd verk Joan Jonas eru nú sýnd í fyrsta sinn á Íslandi. Verkið Reanimation er sýnt í Listasafni Íslands og verkið Volcano Saga er sýnt í Listasafninu á Akureyri. Sýningarnar eru unnar í samstarfi Listasafns Íslands og Listasafnsins á Akureyri. Sérstakir styrktaraðilar eru Safnráð og sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi.

Ásdís Sif Gunnarsdóttir (1976) hefur vakið athygli fyrir vídeó innsetningar, ljósmyndaverk og gjörninga. Auk þess að sýna á Íslandi hefur hún sýnt víða erlendis, tekið þátt í fjölda samsýninga og unnið vídeóverk á internetinu. Það er því engin tilviljun að hún setji upp sýningu á nýjum verkum í Listasafninu á Akureyri á sama tíma og Joan Jonas. Líkt og í verkum Jonas er sterkur kvenlegur undirtónn í verkum Ásdísar Sifjar sem oft er settur fram á ljóðrænan hátt og af tilfinninganæmi. Frásagnir, lífsreynsla og ferðalög konu eru í forgrunni.

Ásdís Sif útskrifaðist með BFA-gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MA-gráðu frá University of California í Los Angeles 2004.

Opnunartími er þriðjudaga - sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar Listasafnsins er alla fimmtudaga kl. 12.15-12.45. Ókeypis aðgangur.