Fullveldið endurskoðað, taka tvö - Rósaboðið

Í tilefni aldarafmælis fullveldisins bjóða fjórar rósir til veislu í Listasafninu laugardaginn 1. desember 2018 kl. 15.

Rósirnar spruttu hver á sínum stað og á sinni stund liðinnar aldar og hver og ein leggur sitt á borð til hátíðarhaldsins. Gjörningurinn er fluttur af listakonunum Heklu Björt Helgadóttur og Brák Jónsdóttur. Viðburðurinn er hluti af 100 ára afmælisdagskrá fullveldisins 1. desember. Aðgangur er ókeypis.