Fyrirlestraröð

Í tengslum við síðustu viku sýningar Jóns Laxdal Halldórssonar, ...úr rústum og rusli tímans, og útgáfu samnefndrar viðtalsbókar Guðbrands Siglaugssonar verður stutt fyrirlestraröð í Listasafninu á Akureyri og útgáfuteiti laugardaginn 12. mars kl. 15. Aðgangur á fyrirlestrana er ókeypis. Sýningunni lýkur sunnudaginn 13. mars.

Fyrirlestrar:

Miðvikudaginn 9. mars kl. 17.15
Svipmyndir úr svepparíkinu
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
sveppafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands

Í fyrirlestrinum verða t.d. sýndir nokkrir sveppir sem undanfarin ár hafa borið aldin í kringum hús hennar á Eyrinni og fjallað um listina að greina hattsveppi eitthvað áleiðis til tegundar. Aðgangur er ókeypis.

Guðríður Gyða lærði sveppafræði við Manitóbaháskóla í Winnipeg í Kanada og útskrifaðist haustið 1990. Hún flutti til Akureyrar vorið 1992 og hóf svepparannsóknir á Náttúrufræðistofnun Norðurlands sem í ársbyrjun 1994 varð Akureyrarsetur Náttúrufræðistofnunar Íslands. Þar hefur hún séð um vísindasafn sveppa á stofnuninni, sinnt rannsóknum á íslensku fungunni, tegundum sveppa og útbreiðslu þeirra. Hún hefur t.d. rannsakað sveppi í misgömlum skógum og safnað því sem skrifað hefur verið um íslenska sveppi. Hún tekur þátt í útgáfu greiningarritsins Funga Nordica og í norrænu samstarfi sem varðar flokkunarfræði og útbreiðslu tegunda sveppa á Norðurlöndum. Síðastliðin ár hefur hún greint myglusveppi í sýnum úr íslenskum byggingum fyrir ýmsa þá sem vilja vita deili á þeim sambýlingum sínum sem sjást best í smásjá.

Fimmtudaginn 10. mars kl. 17.15
Frá týndum myndlistarkonum til Guerrilla Girls
Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir
myndhöfundur og listfræðingur

Á fyrirlestrinum verður staða kvenna innan listheimsins rædd og hversu mikið hún hefur breyst frá því skrif Lindu Nochlin „Hvers vegna hafa ekki verið til neinir miklir kvenlistamenn? birtust í ARTnews 1971. Rit sem vörðuðu leiðina í baráttunni fyrstu árin verða skoðuð og m.a. talað um ritgerð Lucy Lippard „Frá miðjunni“ frá 1976 og bók Germaine Greere „Hamlaða kynið“ frá 1979. Staðan hér innanlands verður einnig rædd og breytingar síðustu áratuga skoðaðar en G.Erla var í hópi þeirra kvenna sem stóðu að því að fá veggspjöld Guerrilla Girls á sýningu í Nýlistasafninu 1994. Hópurinn tók þá saman upplýsingar um stöðuna hér á landi og var sýningin Kvennatími – Hér og nú 30 árum síðar á Kjarvalsstöðum síðastliðið haust og þátttaka Guerilla Girls á Listahátið 2015 tilefni þess að innlenda kynjalandslagið í myndlist í dag var skoðað. 

G.Erla – Guðrún Erla Geirsdóttir stundaði nám in Myndlista- og handíðaskólnum 1971-76 en hélt síðan til Amsterdam og nam þar við Gerrit Rietveld Academie 1976-1980 og lauk prófi í Monumental textíl og í leikmynda- og búninga hönnun. Um tíma var hún aðstoðarmaður listamanna í hinu þekkta gjörninga- og vídeógallerí De Appel og vann að stofnun SÍM og Myndstefs. Einnig er hún menntaður listfræðingur og með MA-gráðu í Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. 

G.Erla hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar, en ein fyrsta einkasýning hennar var í Rauða húsinu á Akureyri. Hún hefur í gegnum tíðina skipulagt ýmsa viðburði og myndlistasýningar t.d.Hér og nú (Kjarvalsstaðir, 1985), Landlist við Rauðavatn (Listahátíð, 2000) og Undir berum himni (Listahátíð, 2013).  G.Erla er ein af stofnendum kvennaframboðsins og Kvennalistans og sat fyrir hönd þeirra í menningarnefndum Reykjavíkurborgar. Hún var framkvæmdastýra Listahátíðar kvenna árið 1985.

Föstudaginn 11. mars kl. 17.15
Fáguð hreyfikerfi
Reynir Axelsson
stærðfræðingur

Hreyfikerfi eru fyrirbæri sem breytast í tíma samkvæmt einhverri tiltekinni reglu. Í fyrirlestrinum verður reynt að sýna hvernig jafnvel einföldustu reglur gefa af sér hreyfikerfi með ótrúlega flókna hegðun sem getur birst í óendanlega flóknum myndum. Aðgangur er ókeypis. 

Reynir Axelsson nam stærðfræði við háskólana í Göttingen og Münster í Þýskalandi og við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum. Hann lauk doktorsprófi árið 1973 og hefur frá árinu 1975 starfað við Háskóla Íslands við kennslu og rannsóknir, þótt í aðeins minna mæli sé eftir að hann lét formlega af störfum árið 2014 fyrir aldurs sakir.