Fyrirlestur: HALLDORA, skóhönnuður

 

Fyrirlestrar á haustdögum - Listnámsbraut VMA og Sjónlistamiðstöðin.

HALLDORA Eydís Jónsdóttir, SKÓHÖNNUÐUR.

Föstudaginn 1. nóvember næstkomandi verður Halldóra Eydís Jónsdóttir, skóhönnuður með fyrirlestur í stofu M01 í Verkmenntaskólanum á Akureyri, kl. 15.

Halldóra Eydís, er fædd og uppalin í náttúruperlunni Mývatnssveit. Hún lærði myndlist og hönnun í Verkmenntaskólanum á Akureyri áður en hún hélt til London í skóhönnunarnám. Myndlist, hönnun, skór og náttúra hafa ávalt verið aðal áhugamál Halldóru. Hið einstaka umhverfið sem hún ólst upp við hefur alla tíð haft mikil áhrif á hönnun hennar og veitt henni innblástur. Það verður einnig að segjast að líklegt er að skósafn ömmu Halldóru hafi átt þátt í að móta þennan mikla skóáhuga, en henni þótti fátt skemmtilegra en að leika sér með skóna hennar sem stelpa. Halldóra Eydís útskrifaðist árið 2010, með 1. einkunn í BA skóhönnunarnámi frá Cordwainers, London College of Fashion.

Upphafslína merkisins HALLDORA af náttúruvænum, einstökum hátískuskóm var síðan kynnt á tískuvikunni í Boston árið 2011, Handverk og Hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur og New York sýningunni ?Fashion Footwear Association of New York?. Hönnun HALLDORA er yfirleitt innblásin af ósnortinni náttúru, til að minna á fegurð hennar og kraft sem þarf að fara vel með. Hráefnið sem HALLDORA notar er að meirihluta íslenskt leður, fiskiroð, hrosshár og kviku hraunkristallar.

Hönnunin er í heild sinni rómantísk og fáguð en með öðruvísi yfirbragð og þægindi í huga, sem hentar konum á öllum aldri.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir