Fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur ársins

Fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur ársins
Gudrun Brückel.

Þriðjudaginn 19. janúar kl. 17 heldur myndlistarmaðurinn Gudrun Brückel fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur ársins í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Moving houses, moving mountains. Þar mun Gudrun fjalla um grunnreglur við gerð klippimynda, út frá eigin verkum, en hún vinnur mestmegnis með form náttúrunnar og arkitektúr.

Gudrun Brückel er fædd árið 1954 í Leonberg, Baden-Württemberg í Þýskalandi og nam listfræði í Staatliche Akademie der Bildenden Künste í Stuttgart og listmálun í Hochschule der Künste í Berlín undir handleiðslu Max Kaminski og Bernd Koberling. Hún kenndi myndlist í Suður-Þýskalandi á árunum 1980-1985 en hefur síðan starfað sem myndlistamaður og kennari. Gudrun hefur haldið fjölmargar einkasýningar síðan 1978 og tekið þátt í samsýningum. Nánari upplýsingar um hana er að finna á heimasíðunni www.gudrunbrueckel.de.

Þetta er fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur ársins og sem fyrr fara þeir fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistafélagsins. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Rachel Lorna Johnstone, Árni Árnason, Anita Hirlekar, Claudia Mollzahn, Kristín Margrét Jóhannsdóttir, Klængur Gunnarsson og Freyja Reynisdóttir, Mille Guldbeck og Lisa Pacini og Christine Istad.

Dagskrá vetrarins má sjá hér að neðan:

19. janúar: Gudrun Bruckel, myndlistarkona
26. janúar: Rachael Lorna Johnstone, prófessor
2. febrúar: Árni Árnason, innanhússarkitekt
9. febrúar: Anita Hirlekar, fatahönnuður
16. febrúar: Claudia Mollzahn, myndlistarkona
23. febrúar: Kristín Margrét Jóhannsdóttir, aðjúnkt
1. mars: Sandra Rebekka Dudziak, myndlistarkona og kennari
8. mars: Klængur Gunnarsson og Freyja Reynisdóttir, myndlistarmenn
15. mars: Mille Guldbeck, myndlistarkona
22. mars: Lisa Pacini og Christine Istad, myndlistarmenn